fbpx
  • 554-1989

Áburður á gras

TRYGGING Á GÓÐRI NÆRINGU OG UMHIRÐU

ÁBURÐARGJÖF

Tilgangurinn með áburðargjöf á gras og annan gróður í heimilisgörðum er að tryggja nægan aðgang að næringarefnum sem það tekur úr jarðveginum og er því lífsnauðsynlegt. Næringarefni plantna eru bundin í jarðveginum og leysast upp í jarðvatninu, af þessum ástæðum er mikilvægt að næringarefni frá áburði í jarðvegi séu í hæfilegu magni til þess að plönturnar geti vaxið og dafnað eðlilega. Ef plöntur eru heilbrigðar verja þær sig betur gegn ágangi meindýra og ná þá frekar að auka framleiðslu og mynda ný laufblöð.

Áburður er einnig góður fyrir annan gróður

Það er alltaf gott að bera áburð á garða og er þá mikilvægt að gæta þess að dreifa honum jafnt, en áburður getur brennt stofna á trjám og grasflöt ef sett er of mikið af honum á einn stað. Garðlist notar áburðardreifara við áburðargjöf.

Áburðarkalki er dreift yfir gras til að auka vöxt þess, auk þess sem það heldur niðri mosanum. Græðir er áburðarblanda sem notuð er í beð til að auka vöxt trjáa og plantna.

Gott er að bera áburð á gróður yfir sumarið.