Í beðahreinsun felst meðal annars vinna við að fjarlægja arfa og annan óæskilegan gróður eða aðskotahluti. Mælt er með beðahreinsun að lágmarki tvisvar sinnum yfir sumarið.
Hjá Garðlist vinna sérstakir hreinsunarhópar sem sjá um beðahreinsanir og almennar garðhreinsanir. Hreinsunarteymin samanstanda af þremur til fimm starfsmönnum sem eru sérþjálfaðir í að hreinsa beð. Við leysum öll verk fljótt og vel af hendi og erum vel tækjum búin. Einnig gætum við þess að skilja vel við umhverfi þeirra garða sem við hreinsum. Við sópum og blásum mold og annan garðúrgang af stéttum og gangstígum og tökum allan úrgang með okkur að verki loknu.