TRJÁFELLINGAR
Garðlist sér um að fella bæði lítil og stór tré ásamt því að bjóða upp á aðstoð við að fjarlægja trjástofna sem eftir sitja með stubbatætaranum okkar.
Hægt er að fella tré allt árið svo fremi að ekki sé allt á kafi í snjó. Margir vilja láta fella stórar aspir og stærðin er engin fyrirstaða fyrir okkur hjá Garðlist, hvort sem við erum að fella tré eða fjarlægja þau eftir á.