Við seljum og þjónustum hágæða slátturóbóta frá Ambrogio. Ambrogio er ítalskur framleiðandi og hans helsta markmið er að framleiða notendavænar hágæðavörur með allra nýjustu tækni.
Róbótar sem taka mið af nærumhverfinu
Slátturóbótarnir frá Ambrogio eru hannaðir með hámarksöryggi að markmiði og vernda þannig bæði náttúrulegt umhverfi og heilsu lifandi vera. Vélarnar eru hljóðlátar og búnar öryggisskynjurum til að vernda allt sem kemur nálægt þeim á meðan þær eru í notkun. Hægt er að fá sérstakan skynjara á dýraólar til að vélin bregðist við með þeim hætti sem best verður á kosið í nálægð við ferfætlinga. Allar vélarnar eru þar að auki búnar öryggishnappi sem tryggir að hægt sé að slökkva á þeim tafarlaust.